Vitanlega fór ég úr sólskini til að mæta rigningu og gráum himni. En þó að það sé ekki óskaveður þá er það á vissan hátt næs. Það passar tilfinningunni sem maður fær þegar maður er kominn heim til Íslands. Heima-tilfinningunni. Einhvern veginn finnst manni maður vera öruggur og afslappaður. Allt er eins og gengur sinn vanagang. En tilbreyting er þó alltaf vel þegin.
Eins og er bý ég hjá pabba í Kóp. MP kemur eftir rúmar tvær vikur og þá flytjum við í íbúð. Ég er ekki með það á hreinu hvert því það er óljóst mál.
Ég er byrjuð að vinna hjá MS og er nú búin að vera tvo daga í þjálfun hjá þeim. Mér virðist vinnan lofa góðu. Allavega er þetta ekki eins auðvelt (líkamlega) og ég hélt. Þó grindurnar séu yfirleitt ekki mjög stórar þá er ein slík sem er full af mjólk mjög þung. Kring um 200 kg. Svo er ýmislegt að læra í kring um útkeyrsluna og afhendingar vöru.
En ég er sátt hingað til.
Í dag skín sól og á morgun er föstudagur. Ég er örlítið þreytt en annars er lífið bara gott.
Við heyrumst seinna elskurnar.

0 kommentarer:
Skicka en kommentar