torsdag, juni 12, 2008

Gorgondól

Ég fæ mér kvöldmat í hádeginu og morgunmat á kvöldin. Má þetta?

Ég hef þá áráttu (þegar ég er ekki að vinna) að snúa sólarhringnum við. A.m.k. segir mamma að ég snúi honum við. En ef ég geri það þá hlýtur sólin að ganga vitlausan hring og það bara hreinlega gengur ekki. Og ef út í það er farið þá gengur sólin bara ekki neitt því hún hefur engar lappir og enga undirstöðu til að ganga á.

Æðruleysi. Var ekki viss með merkingu þessa orðs fyrr en ég þýddi það yfir á ensku. Þá er það stoicism. Þá tala sumir um að taka einhverju með stóískri ró. Æðra hlýtur þá að vera einhver æsingur eða panikk. 
Svo er nú það... rólegan æsing. Eru þetta ekki andstæður?

Ég er þreytt. Það var allt of heitt í dag og ég vann hratt, sennilegast af því að ég drakk slatta af kaffi til að halda mér vakandi. Þetta getur ekki verið hollt. Ég þarf að fara að sofa fyrr.

En til að bæta orðaforða ykkar kjánanna þá er best að ég setji inn skilgreiningar á tveimur afar nytsamlegum orðum. Annars vegar Schaghmadash sem þýðir að vera með væntingar um málsverð og hins vegar Lockstuhl sem þýðir að bíða eftir leigubíl með fótinn fastan í leðju.

Jæja, sofisof..

1 kommentarer:

Heiða sa...

Hahahah. Fínar skilgreiningar.