Og það hefur ekki virkað hingað til að segja við þá "Get a haircut and a real job!". En e.t.v. skilja þeir bara ekki ensku.
Já... mér tókst líka að koma út úr mér eitthvert kvöldið þegar ég var einhverju svefnmóki "To every solution there's a problem". En það er víst venjan að þegar maður er kominn með lausn á vandamáli að þá er vandamálið ekki lengur til staðar. Kannski við ættum að breyta til. Finna fyrst lausn og finna svo vandamál við lausninni.
...
Það var víst haldin einhver tattúráðstefna um helgina og stóð í blaðinu að hún yrði haldin á Tunglinu. Ég veit ekki með aðra en persónulega finnst mér það full langt ferðalag til að mæta á eina ráðstefnu. Áreiðanlega dýrt að fara. En ég er náttúrulega ekki eyðslusamasta manneskja sem ég veit um.
Jæja, best að fara í sturtu.
Hejdå.

0 kommentarer:
Skicka en kommentar