Ég hef komist að því hver maðurinn á bak við tjöldin er. Hver hefði trúað því að hann hefði verið svo nálægur í öll þessi ár. Magnað sjitt.
Ég þarf að fara að skríða út úr vetrarhýðinu mínu og gera eitthvað af viti. Ég sef allt of mikið eins og mér er nú lagið yfir vetrartímann. Fór þó í vinnu á mánudag og bandý í gær svo ég er nú ekki alveg vonlaus. Bandý rúlar.
Skrapp meira að segja í Kringló með Díu minni og elti hana í allar fatabúðir sem bjóða upp á kápukaup. Þar varð allavega eitthvað vökvatap þó hreyfingin hafi ekki verið mikil. Ég fékk þó mat og kaffi eftirá og varð þar með sátt.
Í dag er víst hrekkjavaka. Hrekkir vaka bara í einn dag en fjöllin hafa vakað í þúsund ár. Ég er eitthvað nær hrekkjunum í vökustundum. Gísli var sjóræningi í tilefni dagsins. Hann náði þó ekki nema 2 lítrum en mér finnst það nú ekkert til að státa sig af. Kannski gengur betur næst.
Um Finnlandsferðina er jú eitthvað fréttnæmt til í fórum mínum en ég nenni ekki fyrir neina muni að setja það inn núna svo það kemur bara seinna.
Heyrumst litlu rjómarúsínurnar mínar.

0 kommentarer:
Skicka en kommentar