Ég fæ mér kvöldmat í hádeginu og morgunmat á kvöldin. Má þetta?
Æðruleysi. Var ekki viss með merkingu þessa orðs fyrr en ég þýddi það yfir á ensku. Þá er það stoicism. Þá tala sumir um að taka einhverju með stóískri ró. Æðra hlýtur þá að vera einhver æsingur eða panikk.
Svo er nú það... rólegan æsing. Eru þetta ekki andstæður?
Ég er þreytt. Það var allt of heitt í dag og ég vann hratt, sennilegast af því að ég drakk slatta af kaffi til að halda mér vakandi. Þetta getur ekki verið hollt. Ég þarf að fara að sofa fyrr.
En til að bæta orðaforða ykkar kjánanna þá er best að ég setji inn skilgreiningar á tveimur afar nytsamlegum orðum. Annars vegar Schaghmadash sem þýðir að vera með væntingar um málsverð og hins vegar Lockstuhl sem þýðir að bíða eftir leigubíl með fótinn fastan í leðju.
Jæja, sofisof..
