fredag, oktober 17, 2008

Skilgreiningar

Nú eru til ýmsar skilgreiningar á hinum ýmsu hugtökum. Það eru engar fréttir. En ef út í það er farið þá er ég kannski ekki að fara að segja neinar fréttir. Ég er sennilega bara að gera uppgötvun sem nú þegar hefur verið gerð. En ætli það sé ekki óhjákvæmilegt hvort eð er. Allt er nú til.

Ég öðlaðist skilning á því hvað hetja er. Má vera að þetta sé bara einhver sem ég get litið upp til en það nægir til að gera hann að einhverjum stórkostlegum ;)
Það er sá sem tekur lífinu með stökustu ró en er þó fullur af orku og hraustur í senn. Hann tekur öllu með jákvæðum og opnum hug og er ávallt reiðubúinn til aðstoðar. Hann kveinkar sér ekki yfir vandamálum og leggur sig fram um að finna lausn á þeim. Það er alltaf stutt í brosið og hann vill öllum vel. Hann tekur lífinu ekki of alvarlega og kann að njóta þess að vera til. Hann er ríkur af þolinmæði og visku og er ekki feiminn við að sýna sína réttu liti. Hann er sanngjarn og réttlátur, einbeittur og samviskusamur. Hann kann að meta nýjar og spennandi aðstæður jafnt sem gamlar og góðar en honum tekst að gera þær allar betri en ella.
Ég hef trú á að svona menn bjargi heiminum. Má vera að fólk haldi að slíkir menn fyrirfinnist ekki og þetta séu bara brjálæðislegir hugarórar en ég segi það satt, þeir eru til og ég held þeir viti upp á sig sökina :)

Takk fyrir þig.