torsdag, augusti 13, 2009

Country music award

Jæja.. klukkan bara fjögur um miðja nótt og ég enn vakandi. Bambínó greinilega líka því hann djöflast annað slagið.
Ég er bara eitthvað svo eirðarlaus. Það styttist í flutninga og ég skoða allskyns drasl og dót eins og óð væri. Okkur vantar eiginlega allt innbú svo það þarf að redda því öllusaman og ég kýs að vanda valið úr því að maður er nú að stofna heimili og svona. Er með augastað á hinu og þessu en á bara erfitt með að bíða. Langar að fá þetta strax!
Svo þarf ég orðið stærra búr fyrir Logan því hann stækkar svo hratt. Orðinn rúm 12 kíló. Við byrjum á námskeiði með hann á sunnudaginn. Þó er ég aðeins efins um gagnsemi þessa námskeiðs þar sem ég er búin að kenna honum helminginn af því sem er farið í þarna. En vonandi lærir maður e-ð gagnlegt.

Mig syfjar. Ég ætla að sofa.

0 kommentarer: