...jæks er orð sem er ekki notað nándar nærri nógu oft.
Ég sakna Guns. Er með frekar blendnar tilfinningar gagnvart þessu nýja stöffi hjá Axl. Fyrir utan að hann er búinn að tapa öllu "edge" úr röddinni svo hann hljómar eiginlega eins og gömul kona.
Nú hef ég hungur. Ætli maður þurfi ekki að redda því. Annars er nammidagur. Spurning um að nýta sér það. Verst að mann langar oftast nær í nammi á öðrum dögum. Þetta virkar betur fyrir krakka því þá langar alltaf í nammi. Ég fæ mér bara þegar mér sýnist. Nenni ekki að eltast við svona. Það er eins og að kaupa aukið magn af einhverju þegar það er á tilboði. Ef mjólkurfernan er á 50 kr. einhversstaðar þá á ég samt ekkert eftir að auka neyslu mína á henni þá vikuna svo ég kaupi bara nákvæmlega það magn sem ég þarf... og hvort sem hún er á tilboði eður ei.
Svo í stuttu máli þá stjórnast neysla mín af eigin þörfum og í einstaka tilfellum skyndilegum löngunum. Sumir hafa skapað sér einhverjar aukaþarfir en maður kemst af með ótrúlega lítið í rauninni. Maður þarf jú að éta. En margt annað sem fólk er að kaupa er alger óþarfi.
Einhverntíma, þegar ég kann það, þá ætla ég að lifa af landinu. Fiska bara í vötnum eins og afi og sveitast. Ef stígvélin mín slitna þá teipa ég þau bara og svo endast ullarpeysur manni alveg ótrúlega lengi. Að redda sér sjálfur er draumurinn. Einnig að búa norður á landi.
Þegar Stebbi fór á sjóinn þá var sól um alla jörð..
Það er afar fátt eftirsóknarvert hér í suðrinu. Stanslaust rigningarveður, enginn alvöru vetur og leiðinda vegalengdir sem gerir að verkum mikla umferð og engan tíma fyrir neitt. Ef maður hefur ekki vinnu hérna þá er ekkert hér til að halda í mann (ekki það að ég sé að vinna eins og er en Sveinbjörn er þó að því). Ef það væri eitthvað framboð á vinnu á smærri stöðum á landinu þá væri ég ekki lengi að pakka niður og láta mig hverfa. Auk þess ætla ég ekki að ala krakkann hér. Markmiðið er að vera farin héðan áður en hann kemst á grunnskólaaldur.
Blessuð sértu sveitin mín. Sumar, vetur, ár og daga...
Annars þýðir ekkert að fást um þetta núna. Best að reyna bara að nýta sér það sem er þó í boði hérna þar til maður ákveður að gera e-ð annað. Gerð þú það líka.

0 kommentarer:
Skicka en kommentar