Nú jólast allir. Mamma litar sig, Guðfinna kemur fyrir gjöfum, Hannes stússast eitthvað eins og honum einum er lagið, Sveinbjörn treður í sig kökum (eins og honum EINUM er lagið), krakki sefur vært, Logan leikur sér í snjónum úti í garði og ég tölvast aðeins áður en ég tek jólasturtuna (hljómar eins og ég sturti mig bara við sérstök tilefni) og húsið lyktar eins og hangikjöt. Allt er í orden. Nema ég á eftir að fullkomna dressið mitt.
Allavega þá ætla ég bara að óska öllum nær og fjær, vinum og fjandmönnum (sem eru þó sem betur fer ekki of margir) gleðilegra jóla og kreppulauss komandi árs. Hittumst öll hress og kát á nýju ári og fáum okkur ís.
Og ég minni alla á að jólin eru inni í mér en ekki í jólapakka.
Jólakveðjur,
Ingus, Sveinbjörn og Ingi Alexander.

1 kommentarer:
Genial fill someone in on and this post helped me alot in my college assignement. Gratefulness you as your information.
Skicka en kommentar