Það hefur ekkert verið skrifað hérna í hátt í ár. Og árið á enda runnið. Hvað varð um bloggmenninguna? Er þetta allt orðið að stuttaralegum statusum á fésbók núorðið? En hvað ef maður vill segja meira?
Ég er að hugsa um að vera öðruvísi og skrifa eitthvað tuð hérna. En þó ekki eins og moggabloggararnir sem svífast einskis. Nei, ég ætla ekki að láta neinn vita af því að ég sé byrjuð að blogga aftur. Ég skrifa hér algerlega fyrir sjálfa mig og þá heppnu aðila sem óvart rekast á bloggið mitt fyrir tilviljun. Ekkert agenda. Ég held ég hafi bara unun af því að sjá hvað ég er góður penni.
Ég hef verið að velta fyrir mér að byrja á einhverju námskeiði því að þar sem mig langar að læra alla skapaða hluti þá er ekki seinna vænna að byrja. Skoðaði síðuna hjá Tækniskólanum og rakst á námskeið sem heitir Trésmíði fyrir konur.
Aldrei nokkurn tíma myndi ég láta sjá mig á námskeiði sem endar á orðunum fyrir konur. Ekki kannski nema það hefði beinlínis eitthvað að gera með píkur eða brjóst. Hvað gerir það að verkum að þetta er kynbundið? Fyrir mér hljómar þetta bara eins og ef stæði Námskeið fyrir þroskahefta. Eins og maður sé eitthvað tregari eða þurfi sérstakar leiðbeiningar ef maður er kona.
Trésmíði fyrir homma. Hvernig trésmíði væri það?
En kannski hjálpar þetta einhverjum konum eitthvað. Ég veit það ekki. Þetta er allavega ekki fyrir minn snúð. Ég veit ég get gert hlutina jafn auðveldlega og hver annar hvort sem hann er með göndul eða píku.
Af hverju ég er þá að tuða? Æ, það fýkur alltaf í mig þegar mér finnst ég vera flokkuð með einhverjum hóp sem maður á ekki samleið með. En ég lifi svosum fyrir það að vera öðruvísi, það er ekki það.
Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á að elda bjúgu.

0 kommentarer:
Skicka en kommentar